Letur Fugla eru tvö talsins, þau gefa ásýndinni einstakan og sterkan karakter.
Degular er aðalletur Fugla. Það er notað á vef, í markaðsefni og fleiru í vigtinni Medium. Letrið er notað í alla titla, stóra og smáa, sem og stutta samfellda texta. Degular er aldrei notað í löngu meginmáli. Letrið er fáanlegt í gegnum Adobe fonts eða hjá OH No Type Company.
Inter er notað í allt meginmál í vigtinni Regular, hvort sem er á vef eða í prenti. Inter er hægt að sækja á Google Fonts.
Til að gæta samræmis í hönnun er mikilvægt að hafa eftirfarandi í huga.
Degular – Fyrirsagnir
Fyrirsögn er vinstrijöfnuð.
Með lit er lögð áhersla á grípandi orð í setningu.
Þétt en læsilegt bil milli stafa og lína. Línuhæð er 90% og stafabil -2%.
Eyebrow með punkti fyrir framan og í lágstöfum.
Texti á ekki að vera hægrijafnaður.
Texti á ekki að vera í HÁSTÖFUM.
Ekki leggja áherslu á óáhugaverð orð.
Of mikið bil er á milli lína.
Eyebrow á ekki að vera án punkts fyrir framan og aldrei í HÁSTÖFUM.
Inter – Meginmál
Meginmál er alltaf vinstrijafnað.
Línubil er 1.25 (125%).
Meginmál á ekki að vera miðjujafnað.
Línu- og stafabil er of mikið.