Ræktum vitið er átaksverkefni VR/LÍV og SVÞ. Verkefnið stuðlar að hæfnisaukningu starfsfólks í verslun og þjónustu með því að hvetja starfsfólk og vinnuveitendur til símenntunar. Markmið átaksins er mikilvægt og þarft, en heildarásýndin fær að endurspegla léttu og skemmtilegu hlið verkefnisins, því símenntun á að vera skemmtileg.
Ásýndin fyrir Ræktum vitið stendur sjálfstæð og fylgir eigin reglum, en litirnir eru valdir út frá ásýnd VR og SVÞ, með VR bláum og SVÞ appelsínugulum. Myntugrænn og Klakahvítur eru léttir og einkennandi litir til móts við VR og SVÞ litina og úr verður einstök litapaletta sem grípur augað. Letur, grafík og teikningar fanga enn betur athygli og vekja upp forvitni áhorfanda með skemmtilegum formum og lifandi hreyfigrafík. Úr verður einstök ásýnd sem endurspeglar gildi verkefnisins og hvað það stendur fyrir.