Litir

Litir Reykjastrætis eru hlýlegir og nútímalegir. Þeir búa til tengingu milli alls efnis sem framleitt er.

Yfirlit

Aðallitir

HEX

#131413

RGB

19, 20, 19

HEX

#AD804F

RGB

173, 128, 79

HEX

#F3F3F3

RGB

243, 243, 243

Litatónar

HEX

#F3BA72

RGB

243, 186, 114

HEX

#A5A5A5

RGB

165, 165, 165

HEX

#7F7F7F

RGB

127, 127, 127

✅ This section URL has been copied to your clipboard.

Aðallitir

Nótt

Nótt er dökkur litur með hlýjum undirtónum sem gera hann fullkominn til að bæta dýpt og dramatík. Liturinn gefur tilfinningu um glæsileika og endurspeglar gæði. Nótt er notaður í bakgrunna og texta á ljósum bakgrunni.

HEX

#131413

RGB

19, 20, 19

Mistur

Mistur er notaður sem bakgrunnur eða textalitur á dökkum bakgrunnum. Hann er fullkominn í hlutlausa, þægilega og milda grafík.

HEX

#F3F3F3

RGB

243, 243, 243

Kopar

Kopar er klassískur jarðtóna litur, hlýr og virðulegur. Hann er notaður í ýmsa grafík og titla á dökkum jafnt sem ljósum bakgrunnum. Hann er aldrei notaður í meginmál eða bakgrunna.

HEX

#AD804F

RGB

173, 128, 79

✅ This section URL has been copied to your clipboard.

Litatónar

Hunang

Hunang er hlýlegur jarðtóna litur sem skapar hlýlegt andrúmsloft. Hann er aðeins notaður þar sem þörf er á stórri litapalettu, til dæmis í tölfræðiefni.

HEX

#F3BA72

RGB

243, 186, 114

Silfur

Silfur gefur frá sér hreina og létta tilfinningu. Hann er aðeins notaður þar sem þörf er á stórri litapalettu, til dæmis í tölfræðiefni.

HEX

#A5A5A5

RGB

165, 165, 165

Basalt

Basalt er hlýlegur grár. Hann er aðeins notaður þar sem þörf er á stórri litapalettu, til dæmis í tölfræðiefni.

HEX

#7F7F7F

RGB

127, 127, 127

✅ This section URL has been copied to your clipboard.

Reglur um litanotkun

Atriði til að hafa í huga

Hér fyrir neðan eru nokkrar reglur um notkun lita í bakgrunni, texta og grafík. Litir skulu notaðir gætilega og samkvæmt reglum.

Dæmi um notkun

Bakgrunnur í litnum Nótt.

Grafík í litnum Hunang.

Texti í litnum Mistur.

Ekki nota litatóna í bakgrunn. Aðeins skal nota aðallitina Mistur eða Nótt í bakgrunna.

Hvítur texti er ekki læsilegur á milligráum bakgrunni, gæta þarf aðgengi og að texti sé alltaf skýr.

Bakgrunnur í litnum Mistur.

Texti í litnum Nótt og grafík í litnum Kopar.

✅ This section URL has been copied to your clipboard.