Læsilegt og aðgengilegt letur gefur ásýndinni sterkan karakter.
Skeena Display er notað í allar fyrirsagnir og alltaf í vigtinni Bold. Letrið er aðgengilegt í öllum Microsoft forritum.
Dæmi um notkun
Titill er vinstrijafnaður við meginmál.
Bil á milli lína er ekki of mikið, hér er það stillt á 1.
Gott er að miða við að bil milli titils og meginmáls er þrisvar sinnum hæð lástafa í titli.
Fyrirsagnir eiga ekki að vera miðjusettar.
Of mikið bil er á milli lína í fyrirsögn, hér er það stillt á 1,5.
Skeena Regular er notað í allt meginmál og öðrum texta sem birtist á smærri flötum, alltaf í Regular en getur einnig verið notað í Italics og Bold þar sem það á við. Letrið er aðgengilegt í öllum Microsoft forritum.
Dæmi um notkun
Meginmál er vinstrijafnað við titil.
Línubil er 1.5 sem auðveldar lestur.
Meginmál á ekki að vera miðjusett.
Samfelldur texti á ekki að vera í bold.
Of lítið bil er á milli lína, hér er línubil 1.