Ljósmyndir gefa útlitinu tilfinningu sem ekki er hægt að ná fram með orðum.
Ljósmyndarinn Þráinn Kolbeinsson tók myndir fyrir Yrki til notkunar í öllu efni til birtingar. Hægt er að sækja myndirnar hér fyrir neðan.
Myndastíll Yrkis einkennist af áhugaverðum formum og áferðum. Frekar en að taka myndir af byggingum í heild sinni leitum við að fallegum smáatriðum og ýktum sjónarhornum, skuggum, efnivið og fleiru sem grípur augað. Til að forðast kuldalegar myndir er gott að leyfa náttúrunni að fylgja með, himinn, plöntur og glaðlegir einstaklingar sem bæta hlýleika inn í myndefnið.